Fundaraðstaða lögmannsstofu

Íslög lögmannsstofa

Um okkur

Frá 2012

Íslög er öflug alhliða lögmannsstofa sem sérhæfir sig í þjónustu við íslenskt og alþjóðlegt viðskiptalíf og veitir hágæða þjónustu með sérhæfingu í félagarétti, fyrirtækjaráðgjöf, banka- og verðbréfaþjónustu.

Lögmenn Íslaga hafa víðtæka þekkingu og reynslu af flestum hliðum viðskiptalífsins og veita viðskiptavinum sínum alhliða ráðgjöf, bæði varðandi almenn sem og sérhæfðari lagaleg atriði sem upp koma í fyrirtækjarekstri.

Meðal viðskiptavina Íslaga eru innlend fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum auk erlendra stórfyrirtækja. Þá sinnum við einnig fjölþættum verkefnum fyrir opinbera aðila, innlenda sem erlenda.

Gildi stofunnar

Gæði

Við veitum viðskiptavinum okkar hagnýta ráðgjöf byggða á yfirgripsmikilli faglegri og viðskiptalegri þekkingu sem við höfum aflað okkur.

Þekking á viðskiptavininum

Við tökum okkur tíma til að öðlast skilning á eðli og þörfum hvers og eins viðskiptavinar og umhverfi þeirra. Hagsmunir viðskiptavina okkar eru hjartað sem knýr starfsemi stofunnar.

Samvinna

Við höfum skapað einstakt vinnuumhverfi sem dregur fram það besta í hverjum og einum liðsmanni. Við vinnum sem ein heild, erum einörð og natin við vinnu okkar, hvert annað og viðskiptavini okkar.

Ábyrgð

Við tökum ábyrgð á hvert öðru og öllum okkar athöfnum og á því að geta ávallt veitt viðskiptavinum okkar framúrskarandi faglega þjónustu.

Viðurkenningar

  • Í Legal 500 2014, 2015 og 2016 er mælt með Íslögum í flokkum: Commercial, corporate and M&A og Restructuring and insolvency.
  • Global Award for Insolvency Law Firm of the Year að mati Corporate Live Wire 2012, 2013 og 2014.
  • Global Award for Restructuring & Insolvency Lawyer of the Year in Iceland 2011 og 2012 að mati Corporate Int. Magazine.
  • ACQ Finance Magazine Global Awards 2012.
  • The Lawyers World – Leading Lawyer Awards – 2012 in the category of Insolvency – Iceland.

Þarftu lögfræðiaðstoð?

Við veitum viðskiptavinum hagnýta ráðgjöf sem byggist á yfirgripsmikilli þekkingu og skilningi á eðli og þörfum hvers og eins.

Hafðu samband við okkur til að ræða hvernig við getum aðstoðað.

Hafðu samband